Norrstone

Fyrir skartgripasala og úrsmiði

Gerðu hverja sölu
að varanlegu sambandi.

Norrstone fellur að söluferlinu, býr til varanlegt stafrænt auðkenni við söluna og heldur versluninni í sambandi við eigandann og gripinn allan líftíma hans.

Vottað af Michelsen

Rúmlega aldargamalt traust
á nýjum grunni.

Michelsen úrsmiðir hafa starfað frá 1909 og eru viðurkenndur söluaðili Rolex á Íslandi. Þeir gefa út Norrstone-skráningar undir eigin nafni.

Michelsen Úrsmiðir

Fyrsta verslunin í samstarfi · Reykjavík

Skráning Rolex Sky-Dweller-úrs, vottuð af Michelsen úrsmiðum

Viðskiptasambandið til lengri tíma

Tækifærin byrja
eftir söluna.

Norrstone breytir einni sölu í varanlegt samband milli viðskiptavinarins, gripsins og verslunarinnar.

  1. 01

    Haltu í viðskiptavinina

    Vertu áfram í sambandi eftir söluna í gegnum vandað öryggishólf þar sem nafn verslunarinnar fylgir gripnum.

  2. 02

    Skapaðu endurteknar tekjur

    Ný tækifæri opnast í tryggingum, viðhaldi, uppítöku og staðfestri endursölu.

  3. 03

    Misstu ekki af endursölunni

    Þegar gripurinn er seldur aftur eða tekinn upp í annan liggur leiðin til baka til verslunarinnar sem seldi hann fyrst.

  4. 04

    Kynnstu viðskiptavinunum betur

    Sjáðu meira en kaupsöguna: hvaða gripi hver viðskiptavinur á frá þér og hvernig safnið hans þróast með árunum.

  5. 05

    Nútímaleg upplifun fyrir eigandann

    Gefðu viðskiptavinum skýra stafræna upplifun, jafn vandaða og gripurinn sjálfur, þar sem gögnin eru þeirra einkamál.

Tengist því sem þú notar

Fellur að því
hvernig þú selur í dag.

Norrstone vinnur í bakgrunni og styður við upplifun viðskiptavinarins. Við keppum aldrei við verslunina um söluna.

Sölukerfi
Tengdu Shopify strax í dag. Kerfið býður upp á API-tengingar við afgreiðslukerfi og vefverslanir.
Auðkenni
Skráningin byggist á vöruupplýsingum, myndum, tegundarnúmeri, efni og raðnúmeri.
Staðfesting
Fyrirliggjandi skýrslur eru sóttar frá GIA, IGI, HRD Antwerp og GCAL by Sarine.
Líftími
Eigandinn fær aðgang að öryggishólfinu, tryggingum, þjónustu, uppítöku, endursölu og eigendaskiptum.

Viðskiptakjör

Skýr kjör frá upphafi.

Frá 99 €
Mánaðargjald
Ótakmarkaður fjöldi skírteina og vönduð innleiðing.
15–25%
Tryggingaþóknun
Þegar eigandi tryggir grip í gegnum öryggishólfið.
5–8%
Staðfest endursala
Þegar vottaður gripur skiptir um eigendur í gegnum Norrstone.

Einkakynningar · Reykjavík

Gerðu söluna að upphafi, ekki endapunkti.

Bókaðu einkakynningu á Norrstone. Áskrift fyrir skartgripasala og úrsmiði kostar frá 99 € á mánuði.