Svona virkar þetta
Eitt auðkenni.
Þjónusta alla ævi.
Norrstone gefur verðmætum grip varanlegt stafrænt auðkenni og tengir það við eignarhald, tryggingar, þjónustu, uppítöku, endursölu og eigendaskipti.
01
Gripurinn
Skartgripur eða úr fær skráningu í Norrstone hjá skartgripasala, úrsmiði eða í gegnum viðurkennt staðfestingarferli.
02
Varanlegt stafrænt auðkenni
Lýsing, myndir, söluaðilinn sem gaf skráninguna út, rannsóknargögn og fylgigögn mynda eitt varanlegt auðkenni.
03
Staðfest eignarhald
Skráningin fer í öryggishólf eigandans og fylgir þeim sem á gripinn hverju sinni, líka eftir eigendaskipti.
04
Tengd þjónusta
Tryggingar, tjón, þjónusta, ábyrgð, uppítaka, endursala og eigendaskipti byggja öll á sama auðkenni.
05
Samfelld saga
Skráningin fylgir gripnum og varðveitir samhengið fyrir næstu þjónustu, næsta tryggingafélag, næstu sölu og næsta eiganda.
Grunnurinn
Öll gögnin
á einum stað.
Skírteinið staðfestir hvað gripurinn er. Kerfið heldur auðkenninu, gögnunum, eignarhaldinu og tengdri þjónustu saman svo ekkert glatist á leiðinni.
- Auðkenni
- Framleiðandi, tegundarnúmer, raðnúmer, efni og myndir.
- Staðfesting
- Skýrslur frá GIA, IGI, HRD Antwerp, GCAL by Sarine og öðrum rannsóknarstofum.
- Eignarhald
- Eigendasaga sem núverandi eigandi heldur utan um og getur fært áfram.
- Vernd
- Trygging, iðgjald, gögn vegna tjóna og ákvarðanir tryggingafélagsins.
- Líftími
- Þjónusta, ábyrgð, uppítaka, endursala og eigendaskipti.
NorrstoneÁreiðanleikavottorð- Framleiðandi
- Gucci
- Gripur
- Hálsmen
- Skráning
- Stafrænt vöruvegabréf
- Uppruni
- Staðfestur
- Eignarhald
- Öryggishólf eiganda
- Vottað af
- Maison Gold
- Útgefið
- 12. mars 2026
Skráð á bálkakeðju · Polygon
0x4a7f3d9e2b1c8f6a5e4d3c2b1a0f9e8d7c6b5a4…c38d
Tæknin að baki
Innviðir sem
byggja á trausti.
Kerfið er hannað með væntanleg stafræn vöruvegabréf (DPP) í huga, án þess að tæknin skyggi á upplifun viðskiptavinarins.
- Tilbúið til tengingar
- API-tengingar sem gera kerfinu kleift að tengjast afgreiðslukerfum, vefverslunum og kerfum samstarfsaðila.
- Aðgangsstýrt frá grunni
- Upplýsingum um eignarhald og gripi er aðeins deilt þar sem þær eiga erindi hverju sinni.
- Rekjanleg saga
- Hver atburður í lífi gripsins er skráður þannig að breytingar sjást og festur á bálkakeðju þar sem það á við.
- Evrópskir innviðir
- Hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins, með persónuvernd (GDPR) að leiðarljósi við meðferð persónuupplýsinga.
Einkakynningar · Reykjavík
Tengdu reksturinn við allan líftíma gripsins.
Einkakynning á Norrstone fyrir skartgripasala, úrsmiði, tryggingafélög og aðra samstarfsaðila.