Norrstone

Fyrir tryggingafélög

Betri gögn.
Hraðara áhættumat.
Minni hætta á svikum.

Norrstone heldur utan um aðgangsstýrð gögn um skartgripi og úr og tengir saman varanlegt auðkenni gripsins, eignarhald, tryggingu og tjónasögu. Kerfið opnar líka leið að nýjum viðskiptavinum.

Tryggt hjá Verði

Í notkun í öryggishólfi
eigandans.

Vörður tryggingar er samstarfsaðili Norrstone í tryggingum á Íslandi. Beiðni, yfirferð, trygging, iðgjald, gögn og tjón haldast tengd vottaða gripnum, allt á einum stað hjá eigandanum.

Vörður Tryggingar

Tryggingasamstarfsaðili · Ísland

Virk trygging hjá Verði fyrir Rolex-úr vottað af Michelsen, í öryggishólfi Norrstone

Aðgangsstýrð gögn um gripi

Gripurinn
í skýru ljósi.

Skýrari gögn við umsókn, skipuleg gögn þegar trygging er gefin út og samfelld saga ef til tjóns kemur. Norrstone styður við ákvarðanir tryggingafélagsins en tekur þær ekki.

01

Staðfest auðkenni
Lýsing, söluaðilinn sem gaf skráninguna út, ljósmyndir og fylgigögn haldast tengd gripnum.

02

Staðfest eignarhald
Varanleg skráning tengir núverandi eiganda við gripinn.

03

Betri gögn fyrir áhættumat
Skipulegar upplýsingar um gripinn geta einfaldað móttöku umsókna og áhættumat.

04

Gögn vegna tjóna
Eigendasaga og fylgigögn geta auðveldað mat og staðfestingu þegar tjón verður.

05

Minni hætta á svikum
Varanlegt auðkenni og upprunasaga geta dregið úr óvissu um eignarhald og fylgigögn.

06

Sala í gegnum söluaðila
Eigendur sem uppfylla skilyrði geta óskað eftir tryggingu við kaup og hvenær sem er síðar á líftíma gripsins.

Samfelldur ferill

  1. 01

    Beiðni

  2. 02

    Yfirferð

  3. 03

    Tilboð

  4. 04

    Útgáfa

  5. 05

    Vernd

  6. 06

    Tjón

  7. 07

    Endurnýjun

Hvert skref, með viðeigandi heimildum, helst tengt sama auðkenni gripsins. Tryggingafélagið vinnur út frá samfelldum ferli í stað sundurlausra eyðublaða.

Einkakynningar · Reykjavík

Tengdu tryggingar við auðkenni gripsins.

Við erum opin fyrir samstarfi við evrópsk tryggingafélög og vátryggjendur sem sérhæfa sig í skartgripum og úrum.