Fyrir eigendur
Verðmætin þín.
Eitt stafrænt öryggishólf.
Skírteini, upplýsingar um eignarhald, fylgigögn og þjónusta haldast tengd skartgripunum og úrunum sem þér þykir vænt um.
Þitt öryggishólf
Safnið þitt
í réttu ljósi.
Hverjum grip fylgja nafn verslunarinnar sem vottaði hann, gögnin sem staðfesta hann, eignarhaldið sem tengir hann við þig og þjónustan sem hann þarf um ókomin ár.

Tryggt hjá Verði
Tryggingin og gripurinn
á sama stað.
Vörður tryggingar er samstarfsaðili Norrstone í tryggingum á Íslandi. Með staðfestri skráningu getur eigandinn óskað eftir tryggingu, greitt iðgjaldið, nálgast gögnin og tilkynnt tjón beint frá gripnum.

Tryggingasamstarfsaðili · Ísland

Saga gripsins
Ekkert glatast.
- Sönnun
- Skírteinið, kvittunin, rannsóknarskýrslan, myndirnar og upprunasagan eru geymd á einum stað.
- Vernd
- Óskaðu eftir tryggingu ef gripurinn uppfyllir skilyrði og geymdu upplýsingar um tryggingu og tjón með gripnum.
- Viðhald
- Viðgerðar- og ábyrgðarsagan er skráð með gripnum.
- Sala
- Staðfest auðkenni og sönnun fyrir eignarhaldi eru tilbúin þegar kemur að uppítöku eða endursölu.
- Eigendaskipti
- Gefðu gripinn, seldu hann eða láttu hann ganga í arf og skráningin fylgir honum til næsta eiganda.
01
02
03
04
05

Þegar gripurinn skiptir um eigendur
Sagan fylgir
gripnum.
Gjöf, arfur eða endursala á ekki að rjúfa tengsl gripsins við sögu hans. Norrstone færir skráninguna með gripnum svo næsti eigandi geti treyst honum jafn vel og sá fyrsti.
Einkakynningar · Reykjavík
Allt sem tilheyrir gripnum á einum stað.
Norrstone fæst fyrir iPhone og Android. Öryggishólfið er fyrir eigendur gripa frá söluaðilum sem nota Norrstone.