Norrstone

Norrstone fyrir Shopify

Hverri pöntun
fylgir skírteini.

Settu Norrstone upp úr Shopify App Store og hverjum grip sem þú selur fylgir stafrænt áreiðanleikavottorð sem viðskiptavinurinn á alla ævi. Eingöngu lesaðgangur, uppsett á nokkrum mínútum og ókeypis grunnáskrift.

Eftir uppsetningu

Tíu mínútur frá upphafi til enda.

Það þarf hvorki að fylla út eyðublöð né slá neitt inn aftur. Upplýsingarnar koma úr versluninni og Norrstone sér um afganginn.

01

Tenging með lesaðgangi
Settu appið upp úr App Store og samþykktu tengingu með lesaðgangi. Norrstone getur lesið vörur, pantanir og nafn og netfang kaupanda en getur engu breytt í versluninni.

02

Vörulistinn kemur inn
Vörurnar birtast í Norrstone innan mínútu, með myndum, vörunúmerum og því sem kemur fram í vörulýsingum um málm, steina, stærð og gangverk. Ekkert þarf að slá inn aftur.

03

Hver greidd pöntun verður að skírteini
Um leið og pöntun er greidd fær hver gripur í henni eigið skírteini og kaupandinn fær sendan tengil til að sækja það. Öskjur, ólar, áletranir og gjafakort fá ekki skírteini.

04

Viðskiptavinurinn á það alla ævi
Hann sækir skírteinið í öryggishólfið sitt á vefnum, í iPhone eða Android. Þar eru líka kvittunin, ábyrgðin og saga gripsins. Nafn verslunarinnar sést á hverjum skjá.

Í stjórnborði Shopify

Allt þar sem
þú vinnur nú þegar.

Appið er undir Apps → Norrstone. Gefðu út skírteini, farðu yfir þau og sæktu þau án þess að fara út úr Shopify. Opnaðu stjórnborð Norrstone þegar þú þarft meira.

Yfirlit
Vörulisti, útgefin og sótt skírteini og áskriftarleið, ásamt uppsetningarleiðbeiningum fyrir fyrstu tíu mínúturnar.
Prufuskírteini
Sendu prufuskírteini fyrir hvaða vöru sem er á eigið netfang og skoðaðu tölvupóstinn, öryggishólfið og útprentaða skírteinið áður en fyrsti viðskiptavinurinn gerir það.
Pöntunarsíðan
Opnaðu hvaða pöntun sem er í Shopify og sjáðu skírteinin sem fylgja henni, ásamt A5-skírteini til útprentunar fyrir öskjuna.
Stillingar vottunar
Ákveddu hvaða gripir verða vottaðir og tryggjanlegir: yfir ákveðnu verði, eftir að skilafrestur er liðinn, eftir yfirferð þína eða sjálfkrafa.
Vottunarmerki á vörusíðu
Eining á vörusíðuna sem segir kaupandanum að stafrænt áreiðanleikavottorð fylgi gripnum, í letri þemans, með lágmarksverði og merki (tag) til að fela hana á fylgihlutum.
Þakkarsíðan
Eining í greiðsluferlinu sem lætur kaupandann vita að skírteinið sé á leiðinni, svo tölvupósturinn komi honum ekki á óvart.

Áskriftarleiðir

Greitt í gegnum Shopify.

Skiptu um áskriftarleið á Plan-síðu appsins. Gjöldin koma á Shopify-reikninginn þinn og ekkert er rukkað sérstaklega.

Ókeypis

0 $

Ókeypis uppsetning, án greiðslukorts

  • Tenging með lesaðgangi og samstilling vörulista
  • Ótakmarkaður fjöldi skráðra skírteina og öryggishólf fyrir viðskiptavini
  • 5 vottaðir gripir á mánuði (tryggjanlegir og festir á bálkakeðju)
  • Vottunarmerki á vörusíðu og eining á þakkarsíðu
  • Útprentanlegt skírteini fyrir öskjuna

Pro

99 $

á mánuði, eða 990 $ á ári

  • Allt sem fylgir ókeypis leiðinni
  • Ótakmarkaður fjöldi vottaðra gripa
  • Uppflettingar í skýrslum GIA, IGI, HRD Antwerp og GCAL
  • Skilaboð til viðskiptavina, CRM og áminningar um þjónustu og ábyrgð
  • Skírteini fyrir gjafir og tenging við tryggingar þar sem hún býðst

Verð í Bandaríkjadölum, án virðisaukaskatts þar sem hann á við. Söluaðilar með beinan samning við Norrstone greiða samkvæmt honum og fá aldrei gjöld í gegnum Shopify.

Spurningar

Áður en þú setur appið upp.

Breytir Norrstone einhverju í versluninni minni?
Nei. Tengingin er eingöngu með lesaðgangi og Shopify hafnar öllum breytingum frá appinu. Vörur, pantanir, viðskiptavinir og þema haldast óbreytt. Vottunarmerkinu og einingunni á þakkarsíðunni bætir þú við í ritlum Shopify.
Þarf ég aðgang að Norrstone?
Ekki til að byrja. Við uppsetningu úr App Store er aðgangur fyrirtækisins búinn til út frá upplýsingum verslunarinnar og netfang verslunarinnar fær boð í stjórnborð Norrstone. Þar bíða uppflettingar hjá rannsóknarstofum, skilaboð og skírteini fyrir sölu í verslun þegar þú þarft á þeim að halda.
Hvað fær viðskiptavinurinn?
Tölvupóst frá Norrstone, í nafni verslunarinnar, með tengli til að sækja skírteinið. Það opnast í öryggishólfi á vefnum, í iPhone eða Android, þar sem skírteinið, kvittunin, ábyrgðin og saga gripsins eru á einum stað.
Hver er munurinn á skráðu og vottuðu skírteini?
Hver greidd pöntun fær skráð skírteini: varanlega skráningu í öryggishólfinu með tengli til að sækja það. Gripir yfir verðmörkunum sem þú ákveður verða vottaðir: tryggjanleg skráning sem er fest á opinberri bálkakeðju. Skráð skírteini eru ótakmörkuð í öllum áskriftarleiðum.
Frá hvaða rannsóknarstofum er hægt að sækja skýrslur?
GIA, IGI, HRD Antwerp og GCAL by Sarine, eftir skýrslunúmeri. Gögnin úr flokkuninni fylla út skírteinið og afrit af skýrslunni er geymt svo tengillinn rofni aldrei. Uppflettingar eru hluti af Pro.
Hvað gerist ef ég fjarlægi appið?
Skírteini sem þegar hafa verið sótt tilheyra viðskiptavinunum og haldast í öryggishólfum þeirra. Afrit af vörulistanum og pöntunum eru geymd í 48 klukkustundir og þeim síðan eytt þegar Shopify sendir beiðni um eyðingu.

Aðstoð

Skrifaðu á hg@norrstone.com. Stofnandi svarar, yfirleitt samdægurs.

Persónuvernd

Nafn og netfang kaupanda eru eingöngu notuð til að afhenda skírteinið. Beiðnum Shopify um afhendingu og eyðingu gagna er sinnt sjálfkrafa. Persónuverndarstefna

Öryggishólfið

Það sem viðskiptavinirnir opna: iPhone · Android · vefur

Einkakynningar · Reykjavík

Gefðu hverjum seldum grip skírteini.

Settu appið upp úr Shopify App Store á nokkrum mínútum, eða bókaðu einkakynningu fyrst.